
Stangveiðifélag Siglfirðinga
Stofnað 1956 — félagssvæðið nær yfir Siglufjörð og Fljót í Skagafjarðarsýslu.
Tilgangur og félagssvæði
Nafn félagsins er Stangveiðifélag Siglfirðinga og varnarþing þess er á Siglufirði. Félagssvæðið nær yfir Siglufjörð og Fljót í Skagafjarðarsýslu.
Tilgangur félagsins er að bæta aðstöðu félagsmanna til stangveiði í ám og vötnum og stuðla að aukinni veiðimenningu á félagssvæðinu.

Hvernig félagið vinnur að tilgangi sínum
- 01
Leiguréttindi
Að taka á leigu ár og vötn, til afnota fyrir félagsmenn, eða taka að sér útleigu.
- 02
Veiðimenning
Að vinna á móti ólöglegum og ómenningarlegum veiði-aðferðum.
- 03
Samvinna
Að efla félagslyndi og góða samvinnu meðal stangveiðimanna.
- 04
Fræðsla
Að veita félagsmönnum fræðslu um lax og silungsveiðar.
- 05
Fiskirækt
Að stuðla að aukinni fiskirækt í veiðivötnum.
Hverjir geta sótt um aðild?
“Innganga í félagið er heimil öllum stangveiðimönnum sem vilja undirgangast að misnota ekki venjulegar viðurkenndar stangveiðiaðferðir”
Sækja um aðild